29.08.26 - 16:40
Sverrir Örn Einarsson
Lengjudeild kvenna: Grótta í Bestu deildina

Grótta er mætt í Bestu deildina

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Grótta er mætt í Bestu deildina

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Það var vel fagnað á Seltjarnarnesi nú síðdegis þegar lið Gróttu tryggði sér sæti í Bestu deild kvenna ári með sannfærandi 3-0 sigri á liði Selfoss á Vivaldivellinum.
Grótta 3 - 0 Selfoss
Maya Camille Neal (20´)
Eva Lind Elíasdóttir (60´sjálfsmark)
Shea Collins (86´)
Heimakonur í Gróttu mættu öflugar til leiks og eftir um 20 mínútur leit fyrsta mark leiksins dagsins ljós. Þar var á ferðinni Maya Camille Neal og stóðu leikar 1-0 í hálfleik.
Á 60.mínutu varð Eva Lind Elíasdóttir fyrir því óláni að setja boltann í eigið net og útlitið heldur betur bjart fyrir lið Gróttu sem stefndi hraðbyri upp í Bestu deildina.
Sú varð enda raunin en á 86. mínútu gulltryggði Shea Collins öruggan 3-0 sigur þeirra og gleðin við völd á Seltjarnarnesi.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Grótta | 16 | +26 | 38 |
| 2 | KR | 16 | +17 | 29 |
| 3 | HK | 16 | +13 | 27 |
| 4 | Haukar | 16 | +2 | 27 |
| 5 | Selfoss | 16 | +5 | 26 |
| 6 | ÍA | 15 | +6 | 21 |
| 7 | FHL | 15 | +2 | 21 |
| 8 | Keflavík | 16 | +4 | 18 |
| 9 | Völsungur | 15 | -9 | 12 |
| 10 | Tindastóll | 15 | -66 | 3 |