Skotland tryggði sér þátttökurétt í A deild Þjóðadeildarinnar í vikunni á meðan nágrannar þeirra á Englandi féllu niður í B deildina.
John McGinn leikmaður Aston Villa og skoska landsliðsins segist ekki ætla að monta sig á því við ensku samherja sína hjá Villa.
„Þeir eru að fara á HM en ekki við og það er ennþá sárt. Ég er ekki viss um að við munum horfa á HM. Við verðum að nota þetta sem bensín fyrir undankeppni EM 2024 í Þýskalandi. Við erum með getuna til að komast þangað," sagði McGinn.
McGinn er bjartsýnn á að Skotland fari á EM þar sem liðið fór upp í 2. styrkleikaflokk.
Athugasemdir