28.09.26 - 15:38
Elvar Geir Magnússon
Konsa og Nico O'Reilly æfðu ekki með Englandi

Konsa í leiknum gegn Spáni.

Mynd: EPA

Konsa í leiknum gegn Spáni.

Mynd: EPA
Óvíst er hvort Ezri Konsa og Nico O'Reilly geti tekið þátt í leik Englands gegn Tékklandi í Þjóðadeildinni annað kvöld. Þeir æfðu ekki með liðinu í dag.
Báðir léku allar 90 mínúturnar í 3-2 tapi Englands gegn Spáni á laugardag.
O'Reilly, leikmaður Manchester City, hóf leik í stöðu vinstri bakvarðar og fjarvera hans myndi opna dyrnar fyrir Lewis Hall. Það voru mistök O'Reilly sem urðu til þess að Alex Baena jafnaði metin fyrir Spán, 2-2.
Konsa, leikmaður Arsenal, var í byrjunarliðinu í sjö af átta leikjum liðsins á heimsmeistaramótinu. Miðvörðurinn Jarrad Branthwaite kom inn á fyrir Marc Guehi undir lok leiksins gegn Spáni og gæti komið til greina í byrjunarliðið ef Konsa verður ekki leikfær.