Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 29. nóvember 2019 21:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Swansea réð ekki við Mitrovic
Aleksandar Mitrovic.
Aleksandar Mitrovic.
Mynd: Getty Images
Swansea 1 - 2 Fulham
0-1 Aleksandar Mitrovic ('22 )
0-2 Aleksandar Mitrovic ('43 )
1-2 George Byers ('65 )

Aleksandar Mitrovic fór fyrir liði Fulham í sigri á Swansea í Championship-deildinni í kvöld.

Mitrovic kom Fulham yfir á 22. mínútu og bætti við öðru marki á 43. mínútu. George Byers minnkaði muninn í síðari hálfleik, en lengra komst Swansea ekki og fer Fulham heim með stigin þrjú frá Swansea.

Mitrovic er markahæsti leikmaður deildarinnar með 15 mörk. Hann hefur skorað 23 mörk í 24 leikjum með Fulham og serbneska landsliðinu á þessu tímabili.

Fulham hefur verið á góðu skriði að undanförnu og er í þriðja sæti Championship. Swansea er í sjötta sæti með 30 stig, fimm stigum minna en Fulham.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner