Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 29. nóvember 2021 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Neymar yfirgaf leikvanginn á hækjum
Neymar.
Neymar.
Mynd: EPA
Brasilíumaðurinn Neymar var borinn af velli þegar Paris Saint-Germain vann 1-3 sigur gegn Saint-Etienne í frönsku úrvalsdeildinni.

Neymar sneri illa upp á ökklann á sér og leit þetta alls ekki vel út fyrir brasilísku stórstjörnuna. Neymar yfirgaf leikvanginn á hækjum.

„Á morgun (í dag) mun hann fara í skoðun og þá munum við komast að því hversu alvarleg meiðslin eru," sagði Mauricio Pochettino, þjálfari PSG, eftir leikinn í gær.

Neymar verður væntanlega frá næstu vikurnar og alls ekki útilokað að hann komi ekki meira við sögu á þessu ári.

Neymar hefur átt erfitt uppdráttar upp á síðkastið og alls ekki verið að spila vel.
Athugasemdir
banner
banner