Fotbolti.net
29.11.26 - 11:58
Brynjar Ingi Erluson

Iraola: Hlýtur að vera eitthvað meira í húfi en það

Andoni Iraola

Andoni Iraola

Canon

Mynd: EPA

Andoni Iraola, stjóri Liverpool, vonast til að fagna sigri í sínum fyrsta grannaslag gegn Everton í dag.
Byrjunarlið Everton og Liverpool: Frimpong í bakverðinum - Moyes gerir fjórar breytingar
TENGT EFNI

Byrjunarlið Everton og Liverpool: Frimpong í bakverðinum - Moyes gerir fjórar breytingar

Leikurinn hefst klukkan 12:00 á Hill Dickinson-leikvanginum, heimavelli Everton.

Spánverjinn gerir sér vel grein fyrir mikilvægi leiksins og segir að grannaslagirnir snúist um meira en bara stigin þrjú.

„Þessir grannaslagir snúast ekki bara um daginn sem þeir fara fram, heldur líka dagana fyrir leik og yfirleitt marga daga eftir hann. Allir vilja vinna þessa leiki. Auðvitað eru þetta bara þrjú stig, en það hlýtur að vera eitthvað meira í húfi en það. Öll lið vilja vinna svona leiki,“ sagði Iraola.

Jeremie Frimpong byrjar í hægri bakverðinum í stað Ronald Araujo, sem hefur glímt við veikindi undanfarna daga. Iraola útskýrði ákvörðunina fyrir leikinn.

„Jeremie spilaði mjög vel gegn Brugge um daginn og síðan þá hefur Ronald verið með hita og ekki getað æft. Hann er enn með kvef en getur verið á bekknum. Við vorum ekki nægilega vissir um að hann væri tilbúinn til að byrja eftir þessi veikindi, en vonandi getur hann hjálpað okkur síðar í leiknum,“ sagði Spánverjinn.

Liverpool hefur verið á ágætu skriði að undanförnu og Iraola vonast til að liðið haldi áfram á sömu braut, þótt hann viti vel að grannaslagurinn verði allt öðruvísi verkefni.

„Þessi leikur kemur á góðum tíma fyrir okkur, sérstaklega miðað við skriðið sem við erum á og stöðu okkar í deildinni. En það skiptir ekki öllu máli núna. Þetta er allt annar leikur, hann verður spilaður á annan hátt og vonandi verðum við tilbúnir í það.“

David Moyes, stjóri Everton, stýrir sínum mönnum hins vegar í grannaslagnum í þrítugasta sinn og hefur því töluvert meiri reynslu af þessum leikjum en Iraola.

„Hann hefur klárlega meiri reynslu en ég af þessum leikjum! Vonandi getum við sýnt okkar gæði, spilað vel og unnið þá,“ sagði Iraola í lokin.
Araujo hefur verið að glíma við flensu

Araujo hefur verið að glíma við flensu

Canon

Mynd: EPA

David Moyes er að stýra Everton í 30. grannaslagnum

David Moyes er að stýra Everton í 30. grannaslagnum

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.