29.11.26 - 10:40
Brynjar Ingi Erluson
Skoraði fimm mörk á 38 mínútum

Sima fór hamförum með Lens í gær

Mynd: EPA

Sima fór hamförum með Lens í gær

Mynd: EPA
Senegalski framherjinn Abdallah Sima fór hamförum í 5-2 sigri frönsku bikarmeistaranna í Lens á Angers í gær og skráði sig um leið í fámennan hóp leikmanna í sögu frönsku úrvalsdeildarinnar.
Lens olli miklum vonbrigðum í upphafi tímabilsins, aðeins nokkrum mánuðum eftir að hafa hafnað í öðru sæti frönsku úrvalsdeildarinnar og unnið bikarkeppnina í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Pierre Sage yfirgaf Lens eftir síðasta tímabil og tók við Crystal Palace, en síðan þá hafa tveir þjálfarar verið reknir hjá félaginu. Didier Digard tók loks við stjórnartaumunum á dögunum.
Digard hefur farið ágætlega af stað og fagnaði sínum fyrsta sigri í gær. Það má hann ekki síst þakka Sima, sem gerði sér lítið fyrir og skoraði fimm mörk gegn Angers.
Sima skoraði öll fimm mörkin á aðeins 38 mínútna kafla, frá 43. til 81. mínútu, og varð um leið aðeins sautjándi leikmaðurinn í sögu frönsku úrvalsdeildarinnar til að skora fimm mörk í einum leik.
Hann er jafnframt sá fyrsti til að afreka þetta í einni af fimm stærstu deildum Evrópu síðan Luka Jovic skoraði fimm mörk fyrir Eintracht Frankfurt árið 2018.
Síðast náði leikmaður að skora fimm mörk í einum leik í frönsku úrvalsdeildinni árið 2014, þegar Carlos Eduardo lék sama leik fyrir Nice gegn Guingamp. Skemmtileg tilviljun er að Digard, núverandi þjálfari Lens, var einmitt í liði Nice þann dag.
Sima er 25 ára gamall og hafði aðeins skorað eitt deildarmark fyrir leikinn, en er nú kominn með sex. Það sem gerir afrekið enn ótrúlegra er að hann þurfti aðeins fimm skot til að skora mörkin fimm og fékk að launum fullt hús stiga, tíu í einkunn hjá FotMob.

Première fois de ma vie je vois un sénégalais mettre 5 buts sur un rencontre en haut niveau ????
— PAPI_AFC (@Papi_Gunner41) November 28, 2026
Abdallah Sima are you madddddd???? https://t.co/3Yny6n5WXC