29.11.26 - 10:56
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Everton og Liverpool: Frimpong í bakverðinum - Moyes gerir fjórar breytingar

Jeremie Frimpong er í hægri bakverðinum í dag

Mynd: EPA

Það verður boðið upp á grannaslag í Liverpool-borg í dag þegar Everton tekur á móti Liverpool á Hill Dickinson-leikvanginum klukkan 12:00 í 12. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Það ríkir mikil eftirvænting fyrir grannaslagnum, en þetta verður fyrsti nágrannaslagur Andoni Iraola síðan hann tók við Liverpool í sumar.
Liverpool er komið á gott skrið undir stjórn Spánverjans og ætlar sér að halda því áfram, en Iraola gerir nokkrar breytingar á byrjunarliði sínu.
Hollenski bakvörðurinn Jeremie Frimpong heldur sæti sínu í byrjunarliðinu á meðan Ronald Araujo byrjar á bekknum. Það eru eflaust ekki þær fréttir sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra, en Iraola treystir greinilega á Hollendinginn í þessum mikilvæga leik.
Að öðru leyti er allt nokkurn veginn eftir bókinni. Bradley Barcola og Rio Ngumoha byrja á vængjunum, en Victor Munoz er í leikmannahópnum, sem eru góðar fréttir fyrir Liverpool eftir að hann þurfti að fara meiddur af velli gegn Club Brugge í síðasta leik.
David Moyes, stjóri Everton, gerir fjórar breytingar frá 4-0 tapinu gegn Brentford. Michael Keane kemur inn í vörnina í stað James Tarkowski, sem tekur út leikbann, og þeir Hayden Hackney, Jack Grealish og Tyler Dibling koma inn fyrir Harrison Armstrong, Tyrique George og Merlin Röhl.
Everton: Pickford, O'Brien, Keane, Branthwaite, Mykolenko, Garner, Hackney, Dewsbury-Hall, Dibling, Grealish, Barry.
Liverpool: Alisson, Frimpong, Van Dijk, Jacquet, Kerkez, Szoboszlai, Mac Allister, Wirtz, Barcola, Ngumoha, Isak.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 11 | +10 | 28 |
| 2 | Brighton | 11 | +17 | 22 |
| 3 | Man City | 11 | +8 | 22 |
| 4 | Liverpool | 11 | +8 | 21 |
| 5 | Brentford | 12 | +13 | 20 |
| 6 | Leeds | 12 | +8 | 20 |
| 7 | Bournemouth | 11 | +4 | 18 |
| 8 | Chelsea | 12 | -1 | 16 |
| 9 | Everton | 11 | -2 | 16 |
| 10 | Tottenham | 11 | +1 | 15 |
| 11 | Aston Villa | 12 | -3 | 15 |
| 12 | Hull City | 11 | +2 | 14 |
| 13 | Newcastle | 11 | -3 | 13 |
| 14 | Nott. Forest | 12 | -5 | 12 |
| 15 | Ipswich Town | 12 | -7 | 12 |
| 16 | Coventry | 12 | -11 | 12 |
| 17 | Fulham | 11 | -2 | 11 |
| 18 | Sunderland | 11 | -9 | 9 |
| 19 | Man Utd | 12 | -13 | 8 |
| 20 | Crystal Palace | 11 | -15 | 7 |