Fotbolti.net
29.11.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

La Liga fordæmir rasisma í garð Willimas bræðra

Nico Williams

Nico Williams

Canon

Mynd: EPA

Athletic Bilbao og La Liga fordæma meinta kynþáttafordóma sem bræðurnir Nico og Inaki Williams urðu fyrir í 4-3 sigri Bilbao gegn Malaga í gær.
La Liga greinir frá því að einn aðili hafi náðst og fylgt af vellinum og mun fá refsingu.

Nico Williams lagði upp og skoraði í leiknum en Inaki lagði upp á bróður sinn.

Brasilíski framherjinn Vinicius Jr. hjá Real Madrid hefur verið öflugur baráttumaður gegn kynþáttafordómum í La Liga eftir að hafa oft orðið fyrir kynþáttafordómum.

Árið 2024 voru þrír stuðningsmenn Valencia dæmdir í átta mánaða fangelsi vegna kynþáttafordóma í garð Vinicius í leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.