30.01.21 - 11:00
Ívan Guðjón Baldursson
Birna Dís í Fylki (Staðfest) - Fjórar framlengja

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Það voru fréttir að berast úr Árbænum þar sem kvennalið Fylkis var að semja við fjóra leikmenn sína og krækja í efnilegan leikmann frá Stjörnunni.
Birna Dís Eymundsdóttir kemur frá Stjörnunni en hún er fædd 2004 og varð Íslandsmeistari í 2. flokki með Garðbæingum í fyrra. Birna er markvörður og hefur spilað einn skráðan æfingaleik með meistaraflokki Stjörnunnar.
Fylkir var þá einnig að semja við ungar stelpur í sínum eigin röðum sem skrifa undir samninga sem gilda út tímabilið 2022. Þetta eru fyrstu meistaraflokkssamningar stelpnanna sem eru allar fæddar 2004 og hafa áður tekið þátt í leikjum með meistaraflokki.
Þær heita Agnes Birta Eiðsdóttir, Erna Sólveig Sverrisdóttir, Katrín Vala Zinovieva og Tinna Haraldsdóttir og hafa í heildina spilað 9 leiki fyrir meistaraflokk Stjörnunnar.
„Gangi ykkur vel stelpur. FYLKIR ÁRBÆJARINS BESTA," segir í Facebook færslu frá Fylki.