30.01.21 - 07:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Dennis Man til Parma (Staðfest) - Sá dýrasti frá Rúmeníu

Í æfingaleik gegn Hvíta-Rússlandi. Dennis var ekki í hópnum gegn Íslandi síðasta haust.

Mynd: Getty Images

Dennis Man var í gær keytur frá FCSB til Parma. FCSB er gamla Steaua Búkarest en liðið má ekki bera nafnið lengur út af nafnrétti.
Dennis var keyptur fyrir tæplega tólf milljónir punda og er hann þar með dýrasti leikmaðurinn sem keyptur hefur verið úr rúmensku deildinni.

Hjá FCSB skoraði Dennis 41 deildarmark í 114 leikjum sem verður að teljast þokkalegasta tölfræði þar sem um vængmann er að ræða.
Dennis er 22 ára gamall og á að baki sex landsleiki fyrir Rúmena. Á síðasta ári var hann kjörinn knattspyrnumaður ársins í heimalandinu.
Nicola Stanciu var áður dýrasti leikmaðurinn úr rúmensku deildinni en hann kostaði um átta milljónir punda þegar Anderlecht keypti hann árið 2016. Dennis skrifar undir fjögurra og hálfs árs samning við Parma.