Fotbolti.net
30.01.21 - 14:41
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Deulofeu skrifar undir hjá Udinese (Staðfest)

Deulofeu skrifar undir hjá Udinese (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Watford er búið að staðfesta félagaskipti spænska framherjans Gerard Deulofeu til Udinese. Þessi félög hafa verið mikið að skiptast á leikmönnum undanfarin ár þar sem þau eru bæði í eigu ítölsku Pozzo fjölskyldunnar.
Deulofeu er 26 ára gamall og hefur ekki tekist að festa sig í sessi í byrjunarliðinu hjá Udinese, sem krækti einnig í Roberto Pereyra og Ignacio Pussetto frá Watford í haust.

Deulofeu, sem á leiki að baki fyrir Barcelona, AC Milan, Sevilla og Everton, skoraði 17 mörk í 70 leikjum hjá Watford.

Framherjinn þótti gríðarlega efnilegur á sínum tíma og var algjör lykilmaður í feykilega öflugum yngri landsliðum Spánar. Hann gerði til að mynda 17 mörk í 36 leikjum fyrir U21 liðið.

„Við þökkum Gerard fyrir hans framlag til félagsins og óskum hans alls hins besta í framtíðinni," segir í yfirlýsingu frá Watford.

Deulofeu skrifar undir samning við Udinese sem gildir í þrjú og hálft ár.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.