30.01.21 - 21:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gunnhildi skipt til Orlando Pride (Staðfest)

Gunnhildur í landsleik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnhildur í landsleik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir mun spila með Orlando Pride í bandarísku kvennadeildinni á næstu leiktíð.
Það var tilkynnt í kvöld að henni hefði verið skipt til félagsins en í flestum bandarískum íþróttum er það þannig að leikmönnum er skipt á milli félaga. Það tíðkast til að mynda í NBA-deildinni í körfubolta og í NFL-deildinni (bandarískur fótbolti).
Það er líka þannig í fótboltanum og var Gunnhildi í dag skipt yfir til Orlando frá Kansas City. Gunnhildur fer til Orlando í skiptum fyrir varnarmanninn Kristen Edmonds og valrétt í annarri umferð nýliðavalsins 2022. Í nýliðavalinu fá félög að draga inn unga leikmenn úr háskólaboltanum.
Erin McLeod, kærasta Gunnhildar, spilar með Orlando Pride og munu þær því spila saman á næstu leiktíð. Með Orlando Pride spilar einnig hin brasilíska Marta sem er ein besta fótboltakona sögunnar.
Gunnhildur Yrsa er 32 ára gömul og var hún á láni hjá Val á síðasta tímabili.

Details 👉 we have acquired defender Kristen Edmonds and a 2nd round draft pick in the 2022 NWSL Draft from the Orlando Pride in exchange for midfielder Gunny Jónsdóttir and the rights to midfielder Erika Tymrak.
— KC NWSL (@KCWoSo) January 30, 2021