Fotbolti.net
30.01.21 - 16:37
Ívan Guðjón Baldursson

Jóhann Berg og fleiri framlengja við Burnley (Staðfest)

Jóhann Berg og fleiri framlengja við Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Jóhann Berg Guðmundsson er búinn að skrifa undir nýjan samning við Burnley.
Burnley staðfesti í dag nýja samninga við Jóhann Berg, Matt Lowton, Kevin Long og Erik Pieters.

Jói Berg hefur verið mikið fjarverandi vegna meiðsla en ljóst er að hann er mikilvægur partur af hópnum.

Jói Berg er búinn að skrifa undir samning sem gildir út tímabilið 2022-23. Lowton og Long gerðu einnig tveggja ára samninga en Pieters framlengir um eitt ár.

Jói er 30 ára gamall og hefur spilað 122 leiki fyrir Burnley.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.