Fotbolti.net
30.01.21 - 13:20
Ívan Guðjón Baldursson

Lansbury til Bristol City - Vokins til Sunderland (Staðfest)

Lansbury til Bristol City - Vokins til Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaðurinn Henri Lansbury er búinn að binda enda á samning sinn við Aston Villa og er genginn í raðir Bristol City sem leikur í Championship deildinni.
Lansbury er 30 ára og ólst upp hjá Arsenal en náði ekki að brjóta sér leið í aðalliðið. Hann lék tíu úrvalsdeildarleiki með Aston Villa á síðustu leiktíð en hefur ekki komið við sögu á nýju tímabili.

Hann býr yfir mikilli reynslu úr Championship þar sem hann á hátt í 200 leiki að baki. Lansbury mun því verða mikilvægur liðsauki fyrir Bristol sem er í umspilsbaráttu.

Vinstri bakvörðurinn Jake Vokins mun þá leika fyrir Sunderland að láni út tímabilið. Vokins er tvítugur og á tvo úrvalsdeildarleiki að baki fyrir Southampton. Hann þykir efnilegur og hefur spilað 16 landsleiki fyrir yngri lið Englands.

Sunderland er í fimmta sæti C-deildarinnar sem stendur og er markmið félagsins að fara aftur upp í Championship sem fyrst.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.