Óskar Hrafn Þorvaldsson er í miklum metum hjá stuðningsmönnum KR þrátt fyrir að liðið hafi átt erfitt uppdráttar á síðustu leiktíð. KR tryggði sér áframhaldandi veru í deildinni með stórsigri á Vestra í lokaumferðinni.
Þeir Hilmar Örn Hafsteinsson og Valur Páll Eiríksson, stuðningsmenn KR, eru þó vongóðir um að bjartari tímar séu framundan í Vesturbænum en þeir voru gestir í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net.
Þar ræddu þeir meðal annars um starfsöryggi Óskars Hrafns en hann virtist ekki vera valtur í sessi á síðasta tímabili þrátt fyrir að gengi liðsins hafi verið það slakasta í áraraðir.

„Óskar hefur sýnt það að hann sé einn besti, ef ekki besti þjálfari landsins. Allir sem tala um fótbolta í kringum hann segja það. Hann er okkar maður og við höfum trú á því sem hann hefur að gera. Ég vona innilega að það skili sér á meðan. Ég sem stuðningsmaður var allaveganna aldrei á þeim buxunum að vilja láta hann fara,“ sagði Hilmar Örn.
„Þetta er langtíma verkefni og ég held að allir KR-ingar séu meðvitaðir um það. Eftir að hann kemur inn fer mætingin upp úr öllu valdi og helst út allt sumarið þó að gengið sé ömurlegt. Vonandi fær fólk meira fyrir peninginn en það gerði síðasta sumar,“ sagði Valur Páll og Hilmar tekur orðið.
„Síðan vinnur hann vinnuna sína. Hann er úti í KR frá sjö á morgnanna til sjö á kvöldin. Hann mætir á leiki í öllum yngri flokkum, niður í 4. flokk, ef ekki lengra. Hann lifir og hrærist í þessu. Ég hef trú á því að hann sé að gera réttu hlutina.“
„Það þurfti endurnýjun eftir að við unnum tímabilið 2019. Sú endurnýjun hafði ekkert almennilega farið í gang. Kannski er þessi endurnýjun sem þurfti og það tekur tíma þegar öllu er snúið á hvolf,“ sagði Hilmar.
Athugasemdir