Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
banner
   fim 30. apríl 2026 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Forest og Villa: Williams maður leiksins
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Sky Sports hefur gefið leikmönnum einkunnir eftir fyrri undanúrslitaleik Nottingham Forest og Aston Villa í Evrópudeildinni.

Liðin mættust í spennandi slag fyrr í kvöld og höfðu heimamenn í Nottingham að lokum betur 1-0 þökk sé öruggu vítaspyrnumarki Chris Wood.

Forest var sterkara liðið og komst nálægt því að skora annað mark í leiknum en argentínski landsliðsmarkvörðurinn Emiliano Martínez sá við honum með ótrúlegri markvörslu.

Samkvæmt einkunnagjöf Sky var bakvörðurinn Neco Williams besti leikmaður vallarins með 8 í einkunn og fær samherji hans, enski landsliðsmaðurinn Elliot Anderson sömu einkunn. Anderson var þó heppinn að fjúka ekki af velli með beint rautt spjald eftir stórhættulega tæklingu í fyrri hálfleik.

Martínez og Youri Tielemans voru bestu leikmennirnir í gestaliðinu en Lucas Digne er skúrkurinn eftir að hafa gefið ótrúlega ódýra vítaspyrnu frá sér þegar boltinn fór í handlegginn hans innan teigs.

Digne lyfti handleggjunum upp á furðulegan hátt og stöðvaði þannig fyrirgjöf frá Morgan Gibbs-White sem rétt tókst að forða boltanum frá því að fara útfyrir endalínuna.

Digne fær 5 í einkunn hjá Sky, alveg eins og liðsfélagi sin Emiliano Buendía.

Nott. Forest: Ortega (7), Aina (7), Milenkovic (7), Morato (6), Williams (8), Dominguez (6), Anderson (8), Gibbs-White (7), Hutchinson (7), Jesus (7), Wood (7).
Varamaður: Abbott (6).

Aston Villa: Martinez (7), Cash (6), Konsa (6), Torres (6), Digne (5), Tielemans (7), Onana (6), McGinn (6), Buendia (5), Rogers (6), Watkins (6).
Varamenn: Bogarde (6), Douglas Luiz (6), Maatsen (6), Sancho (6).
Slapp
banner
banner
banner