Tveir fyrri undanúrslitaleikir Evrópudeildarinnar fóru fram í kvöld þegar Nottingham Forest og Braga áttu heimaleiki.
Nottingham Forest tók á móti Aston Villa í úrvalsdeildarslag og var staðan markalaus eftir tíðindalítinn fyrri hálfleik. Heimamenn í Nottingham voru sterkari aðilinn og fengu besta færið en Emiliano Martínez varði marktilraun Igor Jesus meistaralega. Umtalaðasta atvikið í fyrri hálfleik var stórhættuleg tækling Elliot Anderson sem var heppinn að sleppa við að fá rautt spjald. Hann fékk ekki einu sinni gult fyrir.
Það var ekki mikið um færi í seinni hálfleiknum en heimamenn náðu forystunni þegar vítaspyrna var dæmd fyrir afar klaufalega hendi. Leikmenn Aston Villa héldu að boltinn væri kominn útfyrir endalínuna þegar Morgan Gibbs-White gaf hann fyrir markið, en svo var ekki.
Lucas Digne, vinstri bakvörður Villa, lyfti upp höndunum á furðulegri tímasetningu sem reyndist ekki sniðug ákvörðun útaf því að fyrirgjöf Gibbs-White fór beint í hendina á honum. Dómarinn dæmdi markspyrnu upprunalega en breytti dómnum eftir að hafa verið sendur í skjáinn.
Hvorugu liði tókst að skapa mikla hættu á lokakaflanum svo lokatölur urðu 1-0 fyrir Nottingham Forest. Seinni leikurinn fer fram á Villa Park næsta fimmtudagskvöld.
Á sama tíma áttust Braga og Freiburg við í Portúgal þar sem fyrstu tvö mörk leiksins voru skoruð á fyrstu 16 mínútunum.
Demir Tiknaz skoraði fyrst af stuttu færi eftir lágan og fastan bolta fyrir markið í kjölfar langrar sóknar heimamanna. Tiknaz skoraði á áttundu mínútu en Vincenzo Grifo jafnaði átta mínútum síðar eftir hrikalegan vandræðagang í varnarlínu Braga.
Tveir leikmenn Freiburg sluppu í gegnum afar háa varnarlínu heimamanna og skoraði Grifo auðvelt mark af stuttu færi til að jafna metin.
Það ríkti jafnræði með liðunum í spennandi fyrri hálfleik en heimamenn fengu besta færið þegar Rodrigo Zalazar brenndi af vítaspyrnu í uppbótartímanum.
Síðari hálfleikurinn var áfram jafn en heimamönnum tókst að pota inn dýrmætu sigurmarki í uppbótartíma. Þar var Mario Dorgeles á ferðinni þegar hann skoraði eftir klúður hjá Noah Atubolu markverði Freiburg.
Lokatölur 1-1 og er viðureignin því galopin fyrir seinni leikinn í Freiburg.
Nott. Forest 1 - 0 Aston Villa
1-0 Chris Wood ('71 , víti)
Braga 2 - 1 Freiburg
1-0 Demir Ege Tiknaz ('8 )
1-1 Vincenzo Grifo ('16 )
1-1 Rodrigo Zalazar ('45+2, Misnotað víti)
2-1 Mario Dorgeles ('92)




