Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
Hólmar: Hefur mikla þýðingu fyrir alla í kringum Val
Aron Sig: Þess vegna ertu í þessu
Hemmi: Umræðan var óþarflega neikvæð og leiðinleg
Óskar Hrafn: Hef lítinn sem engan smekk fyrir Val
Best í Mjólkurbikarnum: Barðist um milljónir á Netflix
Óskar Smári: Þær geta fokking djöflast þessar stelpur
Birna Jóhanns: Við náðum svo að setja þetta mark í lokin
„Hefði verið extra sætt fyrir hana að ná að setja hann“
Matthías: Ég er stoltur að hafa lifað það af
Agla María fagnaði 250 leikja áfanga með sigri - „Stór áfangi fyrir mig“
Adam Páls: Nú er farið að taka okkur alvarlega
Hemmi Hreiðars: Það var bara samningsatriði
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Óskar Hrafn: Meiri taugaspenna að hafa KR áhorfendur bak við sig
Jökull: Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna
Ólafur Ingi: Einhver narratíva þarna úti sem við erum ekki sammála
Danni Hafsteins: Ég vil spila alla leiki
Lárus Orri: Okkur vantar drápseðli
Sölvi Geir: Hann er búinn að sokka alla sem voru að gagnrýna hann
Amin Cosic hissa: Klobbaði einn og svo annan, bjóst svo við seinna gula þegar ég var rifinn niður
   fim 30. apríl 2026 15:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hlíðarenda
Hemmi: Umræðan var óþarflega neikvæð og leiðinleg
Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals.
Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er frábær tímasetning, laugardagskvöld. Þetta eru erkifjendur og það gæti ekki verið hægt að hafa þetta betra," sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals,

Þessir leikir eru sérstakir og hann verður enn sérstakari undir flóðljósunum á laugardaginn.

„Ég vona að fólk mæti og fylli stúkuna. Þetta eru tvo orkumikil lið og hvað þá ef stúkan verður svolítið þétt setin og alvöru læti þar líka. Þá lofa ég frábærri skemmtun."

KR lagði Val að velli í bikarnum fyrir mót, má búast við öðruvísi leik á laugardaginn?

„Það er mánuður síðan og komnar ansi margar mínútur í marga menn sem voru lítið búnir að spila og lítið búnir að spila saman. Það er stígandi í okkar leik."

„KR er með stórskemmtilegt lið og mikil orka í þeim. Við verðum að vera klárir í það og þurfum að mæta þeim í einu og öllu."

Valsmenn byrjuðu tímabilið á tapi gegn KR í bikarnum og tapi gegn Þór en svo hafa komið þrír sigrar í röð. Sigurinn nærir svo sannarlega.

„Sigurinn er alltaf nærandi á bæði líkama og sál. Mér fannst umræðan óþarflega neikvæð og leiðinleg. Eina sem við gátum gert var að snúa henni okkur í vil, snúa öldunni okkur í hag. Þú gerir það bara með því að vinna fótboltaleiki. Þetta hefur víðtæk áhrif," sagði Hemmi.

Allt viðtalið er hægt að sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner