Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 23:40
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Ronaldo svaraði stuðningsmönnum Al-Ahli
Mynd: Al Nassr
Cristiano Ronaldo skoraði í afar mikilvægum sigri Al-Nassr sem er á góðri leið með að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í Sádi-Arabíu.

Al-Nassr lagði stórveldi Al-Ahli að velli með tveimur mörkum gegn engu í gær og svaraði skælbrosandi Ronaldo spurningum að leikslokum, en þetta gæti orðið fyrsta skiptið sem honum tekst að vinna deildina eftir þrjú og hálft ár.

Á sama tíma hefur Al-Ahli tekist að vinna Meistaradeild Asíu tvö ár í röð eftir að liðið varði titilinn á dögunum.

Stuðningsmenn Al-Ahli ögruðu Ronaldo með að veifa tveimur meistaradeildartitlum sínum framan í hann fyrir viðtalið að leikslokum og svaraði Portúgalinn vinsæli með að benda áhorfendum á að hann væri búinn að sigra Meistaradeild Evrópu fimm sinnum á ferlinum.

   30.04.2026 20:12
Brjálaður eftir tapið: Dómgæslan er til skammar



Slapp
banner
banner