„Heyrðu, hann leggst svona ljómandi vel í mig," sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, þegar hann ræddi við Fótbolta.net eftir fréttamannafund á Hlíðarenda í dag. Það er stórleikur á laugardag þegar þessir erkifjendur mætast.
Óskar Hrafn er mikill KR-ingur og líkar því ekkert sérstaklega vel við Val út frá því.
„Ég hef lítinn sem engan smekk fyrir Val og hef ekki haft frá því ég var ungur drengur."
Óskar Hrafn er mikill KR-ingur og líkar því ekkert sérstaklega vel við Val út frá því.
„Ég hef lítinn sem engan smekk fyrir Val og hef ekki haft frá því ég var ungur drengur."
„Það er eitthvað í loftinu þegar þessi lið mætast, það er spenna milli stuðningsmanna og ég held að leikmenn geri sér alveg grein fyrir þýðingunni. Þetta eru oft á tíðum meira en bara venjulegir deildarleikir. Það er upplifunin oft að það séu meira en þrjú stig í boði. Þetta skiptir máli fyrir fólk og okkur KR-inga."
KR með fullt hús
KR hefur byrjað mótið mjög vel og er með fullt hús stiga. Er einhver hætta á því að menn fari fram úr sér?
„Nei, ég á ekki von á því. Ég vona ekki. Menn eru misjafnir. Sumir hlusta örugglega á öll hlaðvörp og hlusta á sérfræðinga mæra á þá, leikmennina og liðið. Ég vona að flestir átti sig á því að svona er þetta bara, þegar vel gengur þá eru menn geggjaðir og allt bara frábært. Þegar blæs á móti þá finna menn öllu til foráttu."
„Við erum búnir að fara það oft yfir hlutina að menn eru núllstilltir og vita hvað þarf að gera. Þeir vita að þeir leikir sem eru búnir eru bara búnir, það er engin forgjöf og þú ert ekki með neina áskrift að frammistöðu. Þú ert bara það sem þú ert í dag. Ég hef ekki áhyggjur af því að menn svífi um á bleiku skýi," sagði Óskar í löngu viðtali á Hlíðarenda í dag.
Allt viðtalið, sem er mjög athyglisvert, má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.






















