Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir er búin að skrifa undir tveggja ára framlengingu á samningi sínum við Þrótt R.
Þetta eru frábærar fréttir fyrir Þróttara þar sem Sigríður hefur verið mikilvægur hlekkur í miklum uppgangi liðsins á síðustu árum.
Sigríður er fædd 2005 og var lykilleikmaður upp yngri landslið Íslands, þar sem hún á 35 skráða leiki á vefsíðu KSÍ. Þar af eru 22 leikir fyrir U19 landsliðið.
Hún er uppalin í Val en skipti yfir til Þróttar fyrir tveimur árum síðan.



