ÍA 4 - 2 Grindavík
1-0 Unnur Haraldsdóttir ('10)
2-0 Fríða Halldórsdóttir ('22)
3-0 Sandra Ósk Alfreðsdóttir ('28)
4-0 Fríða Halldórsdóttir ('45)
4-1 Birgitta Hallgrímsdóttir ('49)
4-2 Una Rós Unnarsdóttir ('56)
1-0 Unnur Haraldsdóttir ('10)
2-0 Fríða Halldórsdóttir ('22)
3-0 Sandra Ósk Alfreðsdóttir ('28)
4-0 Fríða Halldórsdóttir ('45)
4-1 Birgitta Hallgrímsdóttir ('49)
4-2 Una Rós Unnarsdóttir ('56)
ÍA mætti Grindavík í æfingaleik í gær og komust Skagastúlkur í fjögurra marka forystu fyrir leikhlé.
Markvörður Grindavíkur átti afleitan fyrri hálfleik og átti stóran þátt í þremur fyrstu mörkum andstæðinganna sem voru ansi skrautleg.
Fjórða mark ÍA var einnig skrautlegt en í þetta sinn var ekki mikið hægt að sakast við markvörðinn, heldur átti varnarmaður afleita sendingu til baka sem Fríða Halldórsdóttir fór inn í og skoraði sitt annað mark í leiknum.
Grindavík sló frá sér í síðari hálfleik og minnkaði muninn niður í tvö mörk þökk sé flottum mörkum frá Birgittu Hallgrímsdóttur og Unu Rós Unnarsdóttur.
Meira var ekki skorað og lokatölur 4-2. Mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan. Þar fyrir neðan má svo sjá mörkin úr viðureign ÍA og ÍBV í meistaraflokki karla sem fór fram á miðvikudaginn.
Mörkin úr æfingaleik kvöldsins, ÍA-Grindavík. #fotboltinet pic.twitter.com/mguUslp1Rw
— ÍATV (@ia_sjonvarp) May 29, 2020
Mörkin úr æfingaleik gærdagsins, ÍA - ÍBV. #fotboltinet pic.twitter.com/ThuBQHMNxu
— ÍATV (@ia_sjonvarp) May 28, 2020
Athugasemdir