Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 11:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Vildu ekki taka áhættu með Stubb - „Virkilega ánægður með William"
William Tönning varði mark KA í gær.
William Tönning varði mark KA í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stubbur.
Stubbur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Steinþór Már Auðunsson, aðalmarkmaður KA, var ekki með liðinu í gær þegar það fór í heimsókn á Lambhagavöllinn og tók þaðan með sér þrjú stig.

Stubbur, eins og Steinþór er langoftast kallaður, glímir við smávægileg meiðsli. Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var spurður út í stöðuna á Stubbi eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Fram 1 -  2 KA

„Hann fann aðeins til í upphitun á móti Aftureldingu, en var samt heitur og spilaði leikinn. Svo fann hann bara aðeins til og við vildum ekki taka neina áhættu með hann. Hann er ekkert ungur lengur, 34 ára, þannig við ákváðum bara að hvíla hann. William fór í markið og stóð sig bara mjög vel, virkilega ánægður með hann. Þetta var fyrsti deildarleikurinn hans, mikill talandi og stóð sig bara vel eins og aðrir KA menn í dag," sagði Haddi eftir leikinn.

William Tönning er 26 ára Dani sem kom til KA frá Svíþjóð í glugganum. Hann kom til liðsins eftir að annar markmaður sem KA hafði sótt í vetur, Jonathan Rasheed, varð fyrir því óláni að slíta hásin á æfingu.

Næsti leikur KA verður gegn Stjörnunni á sunnudaginn. Sá leikur hefst klukkan 17:00 á Greifavellinum.
Haddi: Samdi við Rúnar Kristins
Innkastið - Bitlausir Blikar og galopnir KR-ingar
Athugasemdir