Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 30. júní 2022 12:51
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Djed Spence næstur á lista Tottenham?
Mynd: Getty Images
Tottenham náði í morgun samkomulagi við Everton um kaup á brasilíska sóknarmanninum Richarlison. Tottenham greiðir Everton um sextíu milljónir punda fyrir leikmanninn.

Tottenham er líka að fá Clement Lenglet á láni frá Barcelona til að fjölga kostum í varnarlínunni.

Sky Sports greinir þá frá því að Tottenham ætli sér að næla í Djed Spence. Spence er hægri bakvörður sem er samningsbundinn Middlesbrough. Hann lék með Nottingham Forest á síðasta tímabili á láni.

Spence er sagður kosta ríflega fimmtán milljónir punda. Spence verður 22 ára í ágúst og á að baki leiki fyrir U21 landslið Englands.
Athugasemdir
banner
banner