Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 30. júní 2025 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Thun
Svona var EM 2017: Tilburgin er okkar, óþolandi kóngadans og mikil vonbrigði
Icelandair
EM KVK 2025
Eftir leik Íslands og Frakklands á EM 2017.
Eftir leik Íslands og Frakklands á EM 2017.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Freyr Alexandersson tók við af Sigga Ragga.
Freyr Alexandersson tók við af Sigga Ragga.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kata Jóns fékk kveðjuleik á Laugardalsvelli.
Kata Jóns fékk kveðjuleik á Laugardalsvelli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úr fyrsta leik Freysa gegn Sviss.
Úr fyrsta leik Freysa gegn Sviss.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Harpa Þorsteins raðaði inn mörkum í undankeppni EM.
Harpa Þorsteins raðaði inn mörkum í undankeppni EM.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hervie Renard, varnarmaður Frakklands, á blaðamannafundi fyrir fyrsta leik á EM 2017.
Hervie Renard, varnarmaður Frakklands, á blaðamannafundi fyrir fyrsta leik á EM 2017.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dramatískur sigur Frakka í fyrsta leik.
Dramatískur sigur Frakka í fyrsta leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fanndís gerði eina mark Íslands á EM 2017.
Fanndís gerði eina mark Íslands á EM 2017.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Margrét Lára var ekki með á EM 2017 vegna meiðsla.
Margrét Lára var ekki með á EM 2017 vegna meiðsla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sara Björk var fyrirliði Íslands á EM 2017.
Sara Björk var fyrirliði Íslands á EM 2017.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Harpa og Elín Metta eftir fyrsta leik á EM.
Harpa og Elín Metta eftir fyrsta leik á EM.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emmsjé Gauti og Arnar Daði.
Emmsjé Gauti og Arnar Daði.
Mynd: Fótbolti.net
Austurrísku stelpurnar tóku kóngadans.
Austurrísku stelpurnar tóku kóngadans.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Freyr og Ásmundur Haraldsson á góðri stundu.
Freyr og Ásmundur Haraldsson á góðri stundu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslensku stuðningsmennirnir voru frábærir á mótinu.
Íslensku stuðningsmennirnir voru frábærir á mótinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarliðið fyrir síðasta leik.
Byrjunarliðið fyrir síðasta leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það eru núna aðeins tveir dagar í fyrsta leik Íslands á EM 2025. Stelpurnar okkar hefja leik á EM í Sviss gegn Finnlandi á miðvikudag.

Þetta er fimmta stórmótið í röð sem Ísland fer á, en við erum búin að fara yfir EM 2009 og EM 2013. Núna er komið að því að fara yfir EM 2017 sem haldið var í Hollandi.

Þjálfarabreytingar
Eftir EM 2013 þá voru gerðar þjálfarabreytingar hjá kvennalandsliðinu. Sigurður Ragnar Eyjólfsson hætti sem þjálfari liðsins eftir Evrópumótið í Svíþjóð. Það voru nokkrir spennandi þjálfarar orðaðir við starfið eins og Elísabet Gunnarsdóttir, Freyr Alexandersson og Þorlákur Árnason, sem hafði gert góða hluti með Stjörnuna.

Fljótlega beindust spjótin að Frey og var hann ráðinn þjálfari liðsins í lok ágúst árið 2013. Freyr þjálfaði kvennalið Vals 2010 og 2011 með góðum árangri og var aðstoðarþjálfari karlaliðsins. Þegar hann tók við kvennalandsliðinu var hann líka þjálfari Leiknis í Breiðholti og hélt hann áfram í því starfi fyrst um sinn ásamt því að þjálfa landsliðið.

„Mér finnst þetta skrítið mál. Það hefur verið mikið af vangaveltum í lausu lofti milli fjölmiðla. Svo komu leikmenn inn í þetta. Þetta er mjög leiðinlegt mál. Ég er feginn því að vera kominn til starfa því þessu máli er lokið núna," sagði Freyr í sínu fyrsta viðtali sem landsliðsþjálfari og sagði hann tölvupóstsmálinu, sem fjallað var um í síðasta greinadálki, lokið.

Kveðjuleikur Kötu Jóns
Fyrsti leikur Freysa með liðið var gegn Sviss í undankeppni HM. Það var jafnframt kveðjuleikur Katrínar Jónsdóttur með landsliðinu. Hún hafði tilkynnt eftir EM að hún væri hætt með landsliðinu en fékk kveðjuleik á Laugardalsvelli, verðskuldað. Hún er einhver mesta goðsögn í sögu landsliðsins og var fyrirliði í fjöldamörg ár. Hún var andlit þessarar gullkynslóðar sem fór á fyrstu tvö Evrópumótin og spilaði hún alls 133 landsleiki og skoraði í þeim 21 mark.

Það voru annars smá breytingar í fyrsta hóp Freysa. Greta Mjöll Samúelsdóttir kom inn í hópinn eftir langa fjarveru og þá voru sex Stjörnustúlkur í hópnum. Þar á meðal voru Anna Björk Kristjánsdóttir og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir sem áttu ekki landsleik að baki í hópnum.

Stelpurnar mættu svo Sviss á Laugardalsvelli í september 2013 og ekki byrjaði það vel hjá Freysa því leikurinn endaði með 0-2 sigri þeirra svissnesku.

„Auðvitað var það vont að þurfa að fara í fyrsta leik í móti, á móti líka keppinautum um að komast í lokakeppnina. Það var engin óskastaða, en því miður gat ég ekkert gert í því," sagði Freysi eftir leikinn, svekktur.

Fyrsta byrjunarlið Freys var svona:
13. Guðbjörg Gunnarsdóttir (m)
3. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir
4. Glódís Perla Viggósdóttir
5. Hallbera Guðný Gísladóttir
6. Hólmfríður Magnúsdóttir
7. Sara Björk Gunnarsdóttir
8. Katrín Jónsdóttir (f)
9. Margrét Lára Viðarsdóttir
10. Dóra María Lárusdóttir
14. Dagný Brynjarsdóttir
18. Anna María Baldursdóttir

Ásamt Sviss og Íslandi, þá voru Danmörk, Serbía, Ísrael og Sviss í riðlinum. Sviss, sem var í þriðja styrkleikaflokki fyrir undankeppnina rústaði riðlinum og vann Ísland tvisvar, þar á meðal 3-0 á heimavelli. Ísland endaði í öðru sæti riðilsins með 19 stig, en það var ekki nóg til að komast í umspil þar sem aðeins fjögur lið með bestan árangur í öðru sæti fóru með umspilið.

Gönguferð í garðinum
Heimsmeistaramótið varð að bíða, en fókusinn fór þá á undankeppni EM 2017. Svona var riðill Íslands í undankeppninni:

Ísland
Skotland
Belarús
Slóvenía
Norður-Makedónía

Þarna var búið að fjölga liðum á mótinu úr tólf í 16 og var því auðveldara að komast á lokakeppnina. Ísland var í efsta styrkleikaflokki þegar dregið var og þetta var nú líklega auðveldasti riðill sem Ísland hafði fengið í undankeppninni.

Og satt best að segja þá var þessi undankeppni eiginlega bara algjör gönguferð í garðinum. Í fimmtu umferð riðilsins mættum við Skotlandi, sem var næstbesta liðið, og unnum þær 4-0 á útivelli. Hallbera Guðný Gísladóttir, Harpa Þorsteinsdóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir með mörkin. Þegar þarna var komið við sögu var Ísland með fullt hús og markatöluna 21-0.

Stelpurnar okkar fengu fyrsta markið á sig í riðlinum er þær töpuðu 1-2 gegn Skotlandi í lokaumferðinni. Þær unnu riðilinn með 21 stig og markatöluna 34-2.

Harpa Þorsteins var í mögnuðum gír í þessari undankeppni og skoraði tíu mörk, en hún var markahæst í undankeppninni allri ásamt Ödu Hegerberg frá Noregi. Það var algjör lúxus á þeim tíma að vera með bæði Hörpu og Margréti Láru í fremstu víglínu, en það er klárlega eitthvað sem við værum til í að búa yfir í liðinu okkar í dag; að vera með striker í hæsta gæðaflokki eins og á þessum tíma.

Sveindís í fyrsta sinn í æfingahópi
Það er áhugavert að þegar gamlar fréttir eru skoðaðar þá finnur maður stundum eitthvað áhugavert. Í lok árs 2016 var valinn æfingahópur þar sem Sveindís Jane Jónsdóttir var valin í fyrsta sinn. Hún var þá 15 ára gömul að brillera með Keflavík.

Þetta var æfingahópur fyrir æfingar í Kórnum og Egilshöll en þarna voru líka aðrir leikmenn sem eru í hópnum sem spilar á EM núna. Alls voru það sex leikmenn: Alexandra Jóhannsdóttir, Agla María Albertsdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Hildur Antonsdóttir, Guðný Árnadóttir og Sveindís Jane.

Frakkarnir, aftur
Það var dregið í riðla fyrir EM þann 8. nóvember 2016 og viti menn, við fengum Frakkana enn á ný. Við vorum dregin í riðil með Frakklandi, Sviss og Austurríki. Fyrirfram var talið að við ættum góðan möguleika á að gera einhverja góða hluti.

„Þetta eru allt góð lið og við vitum alveg að í lokakeppni Evrópumóts kemur alltaf sterkur riðill. Okkar árangur gegn Frakklandi og Sviss er ekki góður en það er þó kostur að þetta eru þjóðir sem við þekkjum ágætlega og við viljum svo heitt ná að vinna," sagði Freyr um dráttinn.

„Það eru tvö efstu sætin sem gefa sæti í 8 liða úrslitum og við verðum að gera það sem þarf til að sækja þau stig. Það er erfitrt að meta hvar þau gætu komið því Austurríki er líka með gott lið sem hefur náð í frábær úrslit.. Við þurfum sigur og jafntefli til að komast úr riðlinum og tökum einn leik í einu."

Freysi talaði svo um það að hann trúði því að Ísland gæti farið í úrslitin á EM ef allt myndi ganga upp.

„Við þurfum að einbeita okkur að því að komast upp úr riðlinum. Allur okkar undirbúningur er hins vegar til 6. ágúst þegar úrslitaleikurinn fer fram. Ég trúi því alveg að við getum farið alla leið í úrslit en þá þarf allt að ganga upp. Við þurfum að undirbúa okkur eins vel og kostur er á í öllum þáttum. Þá getur hvað sem er gerst."

Erfið meiðsli og Harpa nýbúin að eignast barn
Aðdragandi mótsins í Hollandi var erfiður. Það voru margir leikmenn að glíma við meiðsli og Harpa Þorsteinsdóttir var ólétt. Hún eignaðist barn í mars en var á einhvern hátt komin aftur inn í hópinn fyrir EM. Hún var þó ekki í frábæru standi, eins og gefur að skilja, enda gríðarlega erfitt að koma til baka eftir barnsburð og hvað þá á svona stuttum tíma.

Markadrottningin Margrét Lára Viðarsdóttir gat ekki tekið þátt á mótinu þar sem hún sleit krossband og systir hennar, Elísa, gerði það líka. Það sama gerðist við Dóru Maríu Lárusdóttur og Sandra María Jessen sleit krossband snemma ársins 2017 en náði einhvern veginn að jafna sig fyrir mótið.

„Maður er hálf orðlaus yfir þessu. Þetta eru svo miklar tilviljanir hvernig þetta gerist og ég er fyrst og fremst sár og svekktur fyrir hönd leikmannanna. Þeir hafa verið að æfa vel og það hefur verið mikil tilhlökkun að komast inn á stórmót en svo er það tekið frá þeim á svipstundu," sagði Freyr.

Dagný Brynjarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir höfðu einnig glímt við meiðsli fyrir mótið en voru með.

Svona var hópurinn á EM:

Markverðir:
Guðbjörg Gunnarsdóttir (Djurgarden)
Sandra Sigurðardóttir (Valur)
Sonný Lára Þráinsdóttir (Breiðablik)

Varnarmenn:
Anna Björk Kristjánsdóttir (LB07)
Rakel Hönnudóttir (Breiðablik)
Glódís Perla Viggósdóttir (Eskilstuna)
Hallbera Guðný Gísladóttir (Djurgarden)
Sif Atladóttir (Kristianstad)
Ingibjörg Sigurðardóttir (Breiðablik)
Arna Sif Ásgrímsdóttir (Valur)

Miðjumenn:
Fanndís Friðriksdóttir (Breiðablik)
Sara Björk Gunnarsdóttir (Wolfsburg)
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (Valerenga)
Sigríður Lára Garðarsdóttir (ÍBV)
Málfríður Erna Sigurðardóttir (Valur)
Agla María Albertsdóttir (Stjarnan)
Hólmfríður Magnúsdóttir (KR)
Dagný Brynjarsdóttir (Portland Thorns)

Sóknarmenn:
Harpa Þorsteinsdóttir (Stjarnan)
Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Breiðablik)
Elín Metta Jensen (Valur)
Katrín Ásbjörnsdóttir (Stjarnan)
Sandra María Jessen (Þór/KA)

Leikkerfið
Það var nokkuð mikið talað um leikkerfið fyrir mótið en Freyr gaf það út fyrir mót að Ísland ætlaði að spila 3-4-3. Í undankeppni EM spilaði Ísland 4-2-3-1 en þá var Harpa Þorsteinsdóttir fremst og raðaði inn mörkum. Margrét Lára var þá að spila í kringum hana.

Harpa hafði ekkert spilað eftir barnsburð og íslenska liðið átti í vandræðum með að spila sitt hefðbundna kerfi í æfingaleikjum fram að móti. Freyr prófaði þriggja manna vörn út af skakkaföllum og ákvað að halda sig við það fyrir EM.

„Staðan er sú að þetta kerfi hentar okkur miklu betur út frá leikmannahópnum," sagði Freyr á fréttamannafundi fyrir mót.

Sara Björk fyrirliði
Freyr opinberaði það svo að Sara Björk Gunnarsdóttir yrði fyrirliði Íslands á EM út af fjarveru Margrétar Láru sem hafði tekið við bandinu af Katrínu Jóns.

Guðbjörg Gunnarsdóttir markvörður var varafyrirliði og Dagný Brynjarsdóttir þriðji fyririði.

Sara var ekki elsti leikmaður liðsins á mótinu en hún var gríðarlega reynslumikil komandi inn í það með 106 landsleiki. Hún var jafnframt að fara á sitt þriðja stórmót en hún hafði verið hluti af liðinu frá unga aldri.

Frakkarnir í fyrsta leik
Við fengum vini okkar frá Frakklandi í fyrsta leik þann 18. júlí í Tilburg og má með sanni segja að það hafi verið grátlegur leikur.

Byrjunarlið Íslands var svona:

1. Guðbjörg Gunnarsdóttir (markvörður)
2. Sif Atladóttir (miðvörður)
3. Ingibjörg Sigurðardóttir (miðvörður)
4. Glódís Perla Viggósdóttir (miðvörður)
5. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (hægri vængbakvörður)
7. Sara Björk Gunnarsdóttir (miðjumaður)
8. Sigríður Lára Garðarsdóttir (miðjumaður)
10. Dagný Brynjarsdóttir (sóknarmaður)
11. Hallbera Guðný Gísladóttir (vinstri vængbakvörður)
17. Agla María Albertsdóttir (hægri kantur)
23. Fanndís Friðriksdóttir (vinstri kantur)

Íslenska liðið barðist hetjulega í leiknum og það virtist stefna í markalaust jafntefli, sem hefðu verið frábær úrslit, en á lokamínútunum fékk Frakkland vítaspyrnu sem Eugenie Le Sommer skoraði úr. „Við fengum þau tækifæri sem við vorum búin að tala um og við fengum þrjá risastóra sénsa sem við eigum að klára. Við eigum að fá vítaspyrnu ef þetta var víti hjá þeim í seinni hálfleik. Liðið var hrikalega flott í dag og skipulagið var gott. Leikmennirnir voru hugrakkir og spennustigið var gott. Ég er stoltur en samt svekktur," sagði Freysi eftir leikinn og kom Elínu Mettu Jensen til varnar en hún hafði fengið vítið á sig.

„Hún er ekki skúrkurinn. Það kemur ekki til greina. Ég skal frekar vera skúrkurinn. Þetta er bara bull. Það er dómarinn sem dæmir þetta víti. það er aldrei dæmt víti á þetta. Það er ekki hægt, þetta er rugl og ekkert annað. Elín Metta ber enga ábyrgð á þessu."

Tilburgin er okkar
Eitt skemmtilegasta augnablik mótsins í Hollandi var þegar Arnar Daði, fréttamaður Fótbolta.net, ræddi við rapparann Emmsjé Gauta í Tilburg fyrir leikinn gegn Frakklandi.

Hann reyndi að fá hann til að taka öðruvísi útgáfu af laginu Reykjavík en það gekk ekkert upp hjá honum. Emmsjé Gauti tók ekki þátt í þeirri vitleysu.

En úr varð frábært myndband sem hægt er að rifja upp með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.



„Tilburgin er okkar, hún er okkar."

Mikil vonbrigði og kóngadans
Ísland þurfti að vinna annan leik sinn á mótinu gegn Sviss til að geta komist áfram. Þær höfðu verið okkur erfiðar í undankeppninni og voru það áfram á Evrópumótinu. Það var ein breyting á byrjunarliðinu frá fyrsta leiknum gegn Frakklandi því Katrín Ásbjörnsdóttir kom inn fyrir Öglu Maríu.

Fanndís Friðriksdóttir kom Íslandi yfir eftir um hálftíma leik með frábæru marki en það dugði ekki til; Sviss jafnaði fyrir leikhlé og komst svo yfir í byrjun seinni hálfleiks. Það reyndist sigurmarkið og Ísland því úr leik. „Íslenska liðið lék ekki nægilega vel í dag og skapaði sér ekki nægilega mörg tækifæri. Varnarlega brást liðið á mikilvægum augnablikum og spilið stóran hluta var ekki nægilega gott. Það var góður kafli í lokin en leikurinn of sveiflukenndur hjá okkar liði," skrifaði Elvar Geir Magnússon í textalýsingu sinni frá leiknum.

Dómarinn var hörmulegur en það var engin afsökun. Frammistaðan Íslands á mótinu var ekki nægilega góð og vonbrigðin mikil. Vonbrigðin urðu enn meiri þegar liðinu var skellt 3-0 í lokaleiknum gegn Austurríki. Það var einn hörmulegur leikur sem manni langar helst ekkert að rifja upp.

Eftir leikinn fór Freysi í mjög áhugavert viðtal við Arnar Daða þar sem hann var meðal annars spurður út í leikkerfið sem skilaði ekki miklu á mótinu.

„Heldur þú í alvörunni að leikkerfið sé ástæða þess að liðið hafi ekki náð fleiri stigum? Hlýtur það að telja eitthvað? Það hefur nákvæmlega ekkert með málið að gera.Þú hlýtur að átta þig á því sjálfur ef þú horfir á leikina. Það hefur akkúrat ekkert með málið að gera," sagði Freyr.

Hann var svo spurður út í það hvort væntingarnar hefðu verið glórulausar fyrir mót.

„Mér fannst það ekki, ef við hugsum ekki stórt og reynum ekki að teyja okkur eins langt og við getum, hvað ætlum við þá að vera? Eigum við að fara inn á þriðja stórmótið og ætla bara að vera með? Ég spyr?"

Í miðju viðtali kom austurríska liðið dansandi og syngjandi inn í herbergið þar sem viðtalið fór fram með með hárri danstónlist. Freyr æstist upp í hamagangnum og var vægast sagt pirraður. Skiljanlega, örugglega ekki gaman að sjá andstæðingana dansa kóngadans eftir mikil vonbrigði. Það voru augljóslega mikil vonbrigði fyrir liðið hvernig þetta mót fór; núll stig í þremur leikjum.

Austurríki vann riðilinn, en það var Holland sem fór með sigur af hólmi á mótinu. Hollenska liðið sat eftir í riðli Íslands árið 2013 eftir að Dagný Brynjarsdóttir gerði sigurmarkið í þeim leik, en svona er fótboltinn fljótur að breytast.

Næst munum við fjalla um EM árið 2022 sem fór fram í Englandi.

Leikir Íslands á EM 2025:
2. júlí, Ísland - Finnland
6. júlí, Ísland - Sviss
10. júlí, Ísland - Noregur
Athugasemdir
banner