Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 30. júlí 2021 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Celtic hefur áhuga á Joe Hart
Mynd: Getty Images
Celtic hefur áhuga á markverðinum Joe Hart. Hart er 34 ára fyrrum landsliðsmarkvörður Englands.

Hann hefur spilað tíu leiki með Tottenham, einungis bikar- og Evrópuleiki, frá því hann gekk í raðir Spurs síðasta sumar.

Celtic er í leit að aðalmarkverði en Vasilis Barkas og Scott Bain spiluðu sitthvorn leikinn gegn Midtjylland í forkeppni Meistaradeildarinnar.

Hart hefur dalað mikið undanfarin ár. Hann missti sæti sitt í liði Burnley þegar hann varði mark liðsins í 5-1 tapi í desember 2018. Það er síðasti deildarleikur sem Hart spilaði.

Tottenham er búið að ná í Pierluigi Gollini frá Atalanta og talið ólíklegt að horft sé á Hart sem annan markvörð á blaði á eftir Hugo Lloris.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner