Fotbolti.net
23.09.26 - 06:15
Albert Guðmundsson

38 umferðir - Er Thierno Barry næsti Thierry Henry?

Taktu þátt í fantasy deild 38 umferða og fótbolta.net - Kóðinn er 10k1ov

Auglýsing
38 umferðir er eina hlaðvarpið á Íslandi tileinkað Fantasy Premier League

38 umferðir er eina hlaðvarpið á Íslandi tileinkað Fantasy Premier League

Canon

Mynd: Albert Guðmundsson

Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fimmtu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín og gáfu hlustendum góð ráð til að nýta í landsleikjahléinu.

Fresturinn til að gera breytingar fyrir næstu umferð er laugardaginn 10. október kl. 12:30 en þeir félagar munu taka upp annan þátt þegar nær dregur og leggja spilin á borðið fyrir þá umferðina.
Albert og Sindri mynda gott dúó með breiða skírskotun en Albert er mjög reynslumikill spilari og samkvæmt fplresearch.com besti Fantasy Premier League spilarinn á Íslandi. Sindri er reynsluminni og nálgast leikinn með örlítið öðrum hætti en þeir bestu í bransanum. Þar getur brugðið til beggja vona.

Fotbolti.net verður með draumaliðsdeild fyrir lesendur þar sem verður til mikils að vinna. Fyrstu verðlaun innihalda 100 þúsund kr. gjafabréf upp í ferð á enska boltann með Visitor, 12 rútur af Thule, treyju frá Boltamanninum, gjafabréf á Bullseye og gjafabréf á Matarkjallarann.

Kóðinn í Fantasy deild 38 umferða x Fótbolta.net: 10k1ov

Þú finnur 38 umferðir á Instagram, TikTok og X @38umferdir þar sem verður gjafastuð í vetur.

Samstarfsaðilar 38 umferða eru Thule, Visitor, Bullseye, Boltamaðurinn, World Class, Íslenski barinn og Matarkjallarinn.

Ef þú spilar Fantasy Premier League þá borgar sig að fylgjast með 38 umferðum.

Annar þáttastjórnandi 38 umferða valdi Thierno Barry sem fyrirliða og fékk mark að launum

Annar þáttastjórnandi 38 umferða valdi Thierno Barry sem fyrirliða og fékk mark að launum

Canon

Mynd: Everton

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.