Fotbolti.net
23.09.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Cunha: Ímyndið ykkur ef við bætum okkur fyrr

Cunha: Ímyndið ykkur ef við bætum okkur fyrr
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski sóknarleikmaðurinn Matheus Cunha er kominn með tvö mörk og eina stoðsendingu í sjö leikjum á upphafi tímabils, auk þess að fiska vítaspyrnu.
Jöfnun á versta árangri Man Utd
TENGT EFNI

Jöfnun á versta árangri Man Utd

Cunha er byrjunarliðsmaður hjá Manchester United og bjargaði hann stigi á útivelli gegn Fulham um helgina. Hann setti jöfnunarmarkið seint í leiknum og var með skilaboð til stuðningsmanna Rauðu djöflanna.

„Mér líður eins og við séum með mikið sjálfstraust. Við vitum hvað við þurfum að gera til að ná betri úrslitum. Við vitum að við þurfum að bæta okkur fyrr en við gerðum á síðustu leiktíð. Ímyndið ykkur ef við bætum okkur fyrr á þessu tímabili, það gæti komið eitthvað mjög gott út úr því," sagði Cunha eftir jafnteflið við Fulham.

Man Utd gekk ekki vel undir stjórn Rúben Amorim á síðustu leiktíð en úrslitin snarbötnuðu um leið og Michael Carrick var ráðinn til bráðabirgða. Rauðu djöflarnir voru óstöðvandi á seinni hluta tímabilsins en þeim tókst ekki að halda sama gæðastigi komandi inn á nýtt keppnistímabil og eru aðeins komnir með tvo sigra í fyrstu sjö leikjunum í öllum keppnum.

United endaði í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð eftir að hafa nælt í 39 stig úr 17 leikjum undir stjórn Carrick.
Cunha: Ímyndið ykkur ef við bætum okkur fyrr
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.