Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 30. september 2022 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arnar Helgi framlengir við Njarðvík
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Helgi Magnússon hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Njarðvík. Arnar er uppalinn í FH en hefur leikið með Njarðvík frá árinu 2016.


Hann hefur leikið 191 leik fyrir Njarðvík á vegum KSÍ og skorað í þeim 16 mörk.

Arnar tók þátt í 21 leik með liðinu í sumar þegar það tryggði sér sæti í Lengjudeildinni næsta sumar með því að sigra 2. deildina. Hann skoraði fjögur mörk.

„Það er því mikið gleðiefni að halda Arnari áfram í grænu treyjunni og óskar knattspyrnudeildin honum til hamingu með nýjan samning," segir í fréttatilkynningu knattspyrnudeildar Njarðvíkur.


Athugasemdir
banner
banner
banner