Scott McTominay, miðjumaður Manchester United, segir að tími Donny van de Beek muni koma hjá liðinu.
Van de Beek kom til United frá Ajax á 35 milljónir punda í sumar en síðan þá hefur hann einungis byrjað tvo leiki.
Hann kom ekki við sögu gegn Chelsea um síðustu helgi en byrjaði í 5-0 sigrinum á RB Leipzig í vikunni.

„Donny van de Beek er frábær strákur og stókostlegur fótboltamaður. Ég er viss um að miðað við hversu vel hann er að æfa á æfingasvæðinu þá muni tími hans koma og hann muni fá fleiri mínútur á vellinum," sagði McTominay.
„Ég hef talað aðeins við hann og hann er topp strákur. Eins og hann hagar sér, hann er aldrei seinn á æfingar og æfir alltaf af fullum krafti. Við erum með virkilega góðan leikmann og virkilega góðan einstakling þar."
Athugasemdir