Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 30. nóvember 2020 17:00
Magnús Már Einarsson
Hallur framlengir við ÍA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hægri bakvörðurinn Hallur Flosason hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við ÍA.

Hinn 27 ára gamli Hallur var samningslaus eftir tímabilið en hann mun nú leika áfram með ÍA.

Hallur hefur spilað með ÍA allan sinn feril en hann hefur skorað sex mörk í 120 deildar og bikarleikjum.

„Hallur er mikilvægur leikmaður í okkar hópi og býr yfir mikilli reynslu sem nýtist vel í því uppbygginga starfi sem félagið vinnur að," segir á Twitter síðu ÍA.


Athugasemdir
banner
banner