Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 30. nóvember 2021 20:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ekki búinn að ræða við Söru - „Eitthvað sem framtíðin leiðir í ljós"
Icelandair
Sara Björk og kærasti hennar, Árni Vilhjálmsson.
Sara Björk og kærasti hennar, Árni Vilhjálmsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði, eignaðist sitt fyrsta barn fyrr í þessum mánuði.

Sara Björk er leikmaður stórliðsins Lyon í Frakklandi. Hún er búin að setja stefnuna á að komast aftur á völlinn fyrir Evrópumótið næsta sumar; hún ætlar sér að spila þar með íslenska landsliðinu.

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, var spurður á því á fréttamannafundi í kvöld hvort hann hefði eitthvað rætt við Söru eftir að hún eignaðist barnið.

„Nei, ég er ekki búin að ræða neitt við hana. Hún þarf að vinna sig upp og koma sér í gang. Það kemur í ljós hvernig það gengur. Vonandi gengur það vel. Að öðru leyti hef ég ekkert spáð í þann möguleika. Það er eitthvað sem framtíðin leiðir í ljós," sagði Þorsteinn.

Sara er auðvitað lykilmaður í landsliðinu og algjör leiðtogi fyrir liðið. Hún ætlar sér að vera á EM og ef einhver getur það, þá er það hún.
Athugasemdir
banner
banner