Sífelld meiðslavandræði Eden Hazard halda áfram. Hazard nær ekki að komast á neitt skrið hjá Real Madrid og hefur aðeins byrjað fjóra leiki í La Liga á tímabilinu.
Þessi þrítugi leikmaður er nú að glíma við vöðvameiðsli og hefur misst af síðustu þremur leikjum. Hann mun einnig missa af leiknum gegn Athletic Bilbao á morgun vegna kálfameiðsla.
Þessi þrítugi leikmaður er nú að glíma við vöðvameiðsli og hefur misst af síðustu þremur leikjum. Hann mun einnig missa af leiknum gegn Athletic Bilbao á morgun vegna kálfameiðsla.
Real Madrid er á toppi La Liga með fjögurra stiga forystu á Atletico Madrid.
Hazard hefur lítið sýnt hjá Real síðan hann kom til félagsins frá Chelsea árið 2019 og gæti farið í janúarglugganum.
Athugasemdir