Fotbolti.net
31.01.21 - 23:13
Ívan Guðjón Baldursson

Cenk Tosun til Besiktas (Staðfest)

Cenk Tosun til Besiktas (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tyrkneska stórveldið Besiktas er búið að staðfesta komu sóknarmannsins öfluga Cenk Tosun á lánssamningi út tímabilið.
Tosun er 29 ára gamall og hefur verið hjá Everton í þrjú ár án þess þó að finna taktinn. Hann hefur skorað 11 mörk í 58 leikjum fyrir félagið og var lánaður til Crystal Palace á síðustu leiktíð en sneri aftur til Everton skömmu síðar vegna slæmra meiðsla.

Tosun gerði 64 mörk í 142 leikjum fyrir Besiktas áður en Everton keypti hann til sín. Sóknarmaðurinn á þá 45 landsleiki að baki og í þeim hefur hann skorað 18 mörk.

Samningur Tosun við Everton rennur út í júní á næsta ári. Hann á að hjálpa Besiktas í toppbaráttunni þar sem liðið er í öðru sæti, einu stigi eftir Fenerbahce.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.