31.01.21 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Cristofer Rolin í Ægi (Staðfest)

Rolin í leik með Skallagrími sumarið 2019.

Mynd: Sigurður Arnar Sigurðsson

Ægir hefur samið við framherjann Cristofer Moises Rolin um að leika með liðinu í 3. deildinni næsta sumar.
Hinn 27 ára gamli Cristofer kom fyrst til Íslands 2019, til Skallagríms eftir að hafa áður spilað á Spáni.
Cristofer skoraði sjö mörk í 21 leik þegar Skallagrímur féll úr 3. deildinni 2019. Hann gekk í raðir Sindra, sem er í 3. deild, fyrir síðasta sumar og skoraði þá átta mörk í 11 deildarleikjum.
Cristofer á ættir að rekja til Miðbaugs-Gíneu en árið 2015 spilaði hann sinn fyrsta og eina landsleik þegar hann kom inn á sem varamaður í 1-0 sigri á Andorra.
Sindri hafnaði í fimmta sæti 3. deildarinnar í fyrra og Ægir hafnaði í áttunda sætinu.