Fotbolti.net
31.01.21 - 15:14
Victor Pálsson

Demarai Gray til Leverkusen (Staðfest)

Demarai Gray til Leverkusen (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Vængmaðurinn Demarai Gray er genginn í raðir Bayer Leverkusen í Þýskalandi en þetta var staðfest nú rétt í þessu.
Gray fékk leyfi frá Brendan Rodgers til að yfirgefa Leicester í janúar en hann var alls ekki inni í myndinni hjá stjóranum.

Gray kostar Leverkusen um tvær milljónir punda og skrifaði hann undir eins og hálfs árs samning.

Gray er 24 ára gamall en hann kom til Leicester frá Birmingham City fyrir fimm árum síðan.

Englendingurinn spilaði alls 133 deildarleiki fyrir Leicester og skoraði í þeim tíu mörk. Hann á að baki 26 landsleiki fyrir U21 lið Englands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.