31.01.21 - 18:11
Ívan Guðjón Baldursson
Fulham lánar Seri til Bordeaux (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Bordeaux er búið að tryggja sér miðjumanninn Jean Michael Seri að láni frá Fulham út tímabilið.
Seri var gríðarlega eftirsóttur af stórliðum á sínum tíma en endaði hjá Fulham og tókst ekki að fóta sig þar.
Seri lék 36 leiki fyrir Fulham og lék fyrir Galatasaray að láni á síðustu leiktíð.
Seri er 29 ára gamall landsliðsmaður Fílabeinsstrandarinnar og rennur samningur hans við Fulham út á næsta ári.
Bordeaux er um miðja deild í Frakklandi. Laurent Koscielny er fyrirliði og ber liðið að geyma menn á borð við Hatem Ben Arfa, Jimmy Briand og Yacine Adli.