31.01.21 - 13:19
Victor Pálsson
Karólína Jack í Fylki (Staðfest)

Mynd: Fylkir

Mynd: Fylkir

Karólína Jack hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fylki en hún gengur í raðir liðsins frá HK/Víkingi.
Þetta kemur fram í tilkynningu Fylkis í dag en Karólína er efnilegur leikmaður og er aðeins 19 ára gömul.
Karólína spilaði 14 leiki með HK/Víkingi í Pepsi Max-deild kvenna árið 2019 en missti af mótinu í fyrra eftir krossbandsslit.
Karólína spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir HK/Víking árið 2016 og hefur alls spilað 55 leiki í meistaraflokki og skorað 13 mörk.
Tilkynning Fylkis:
Karólína Jack hefur gert tveggja ára samning við Fylki, en hún kemur til félagsins frá uppeldisfélagi sínu Víkingi, eftir stutt stopp í Vesturbæ Reykjavíkur. Karólína, sem er 19 ára gömul, hefur leikið 55 meistaraflokksleiki með HK/Víkingi í deild og bikar og skorað í þeim 13 mörk. Þá hefur hún spilað 33 leiki með yngri landsliðum Íslands og skorað í þeim þrjú mörk.
Haustið 2019 varð Karólína fyrir því óláni að slíta krossband í hné á æfingu. Hún hefur því verið í stífri endurhæfingu undanfarna mánuði sem gengið hefur vel þó enn sé nokkuð í að hún sé 100% klár í slaginn. Félagið mun styðja við bakið á Karólínu í endurhæfingu sinni og hlökkum við til að sjá hana í Fylkistreyjunni þegar fram líða stundir. Sjálf er Karólína full tilhlökkunar að klæðast orange treyjunni og ánægð með að vera orðinn partur af Fylkisfjölskyldunni.
Við bjóðum Karó hjartanlega velkomna í Fylki!
FYLKIR ÁRBÆJARINS BESTA