Fotbolti.net
31.01.21 - 16:16
Victor Pálsson

Man Utd lánar Pellistri til Spánar (Staðfest)

Man Utd lánar Pellistri til Spánar (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Úrúgvæski miðjumaðurinn Facundo Pellistri er búinn að skrifa undir samning við Alaves á Spáni.
Þetta staðfesti Manchester United nú rétt í þessu en Pellistri gerir lánssamning við Alaves út tímabilið.

Um er að ræða 19 ára gamlan leikmann sem kom til Man Utd frá Penarol í Úrúgvæ á síðasta ári.

Pellistri fékk engin tækifæri með aðalliði Man Utd á tímabilinu og freistar þess að fá fleiri á Spáni.

Pellistri hefur spilað 39 meistaraflokksleiki á ferlinum og skorað í þeim þrjú mörk.

Hann er fæddur þann 20. desember árið 2001.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.