31.01.21 - 19:56
Ívan Guðjón Baldursson
Patrick Cutrone til Valencia (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Valencia er búið að staðfesta komu ítalska sóknarmannsins Patrick Cutrone að láni frá Wolves út tímabilið.
Cutrone er 23 ára gamall og gekk í raðir Úlfanna sumarið 2019 en fann aldrei taktinn á Englandi.
Hann var lánaður til Fiorentina á síðustu leiktíð en sú dvöl heppnaðist herfilega þar sem honum tókst aðeins að skora 5 mörk í 34 leikjum.
Hjá Valencia mætir Cutrone til sögufrægs félags sem hefur verið á hraðri niðurleið undanfarin misseri. Liðið er í neðri hluta spænsku deildarinnar, fjórum stigum frá fallsæti.

OFFICIAL STATEMENT | Patrick Cutrone ✍️
— Valencia CF 🦇🍊🌊 (@valenciacf_en) January 31, 2021
Benvenuto al VCF! #BenvingutCutrone