31.01.21 - 09:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tansanískur leikmaður til Völsungs (Staðfest) - Leikmenn skrifa undir

Adolf í leik með Keflavík

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Ólafur Jóhann Steingrímsson var meðal þeirra sem framlengdu sína samninga.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Völsungur sendi í gær frá sér tilkynningu þar sem greint frá því að nokkrir leikmenn hefðu annað hvort skrifað undir sína fyrstu samninga eða framlengt samninga sína við félagið. Þá hefur liðið fengið inn nýjan leikmann.
Sá leikmaður heitir Adolf Mtasingwa Bitegeko og er frá Tansaníu. Adolf er 22 ára gamall en hann var að mála hjá KR frá árinu 2018 og lék með Keflavík að láni sumarið 2019.

Tilkynning Völsungs:
Völsungspenninn var sannarlega á lofti í vallarhúsinu fyrr í dag þegar sjö ungir og efnilegir piltar skrifuðu undir nýja tveggja ára samninga við Völsung.
Það voru ungu herramennirnir Arnþór Máni Böðvarsson, Einar Örn Sigurðsson, Guðmundur Gígjar Sigurbjörnsson, Jakob Héðinn Róbertsson, Kristján Leó Arnbjörnsson, Ólafur Jóhann Steingrímsson og Tryggvi Grani Jóhannsson.
Jakob Héðinn og Tryggvi Grani eru báðir að skrifa undir sína fyrstu samninga. Jakob er á sextánda ári og þar með enn gjaldgengur í 3. flokk en Tryggvi er á sautjánda ári og nýgenginn upp úr þeim flokki í meistaraflokk.
Arnþór Máni, Einar Örn og Guðmundur Gígjar framlengdu allir samninga sína en þeir hafa verið viðloðandi meistaraflokkinn síðustu tvö árin og eru enn á 2.flokks aldri. Arnþór á að baki einn meistaraflokksleik, Einar tvo en Guðmundur á enn eftir að taka þátt í sínum fyrsta mótsleik.
Kristján Leó er á tvítugsaldri og nýgenginn upp úr 2.flokki. Hann á að baki fjóra leiki fyrir meistaraflokk Völsungs.
Ólafur Jóhann er aldursforseti undirskriftarinnar, 21 árs gamall og á 62 leiki fyrir Völsung þar sem hann hefur skorað 4 mörk. Hlutverk Ólafs í liðinu hefur farið stigvaxandi undanfarin ár og hann er kominn með mikla reynslu sem vonandi mun nýtast okkur innan sem utan vallar í sumar.
Það er mikil ánægja meðal Völsunga með undirskriftir þessara glæsilegu og hæfileikaríku pilta sem vonandi munu láta ljós sitt skína á vellinum fyrir Völsung í sumar og á komandi árum!
Auk þess er okkur gríðarleg ánægja að tilkynna um leið um nýjan leikmann. Adolf Mtasingwa Bitegeko, frá Tansaníu er 22 ára gamall miðjumaður sem hefur samið við Völsung um að leika með liðinu í sumar. Adolf er öflugur leikmaður sem þekkir íslenskar aðstæður eftir að hafa komið til KR 2018 og leikið þar 2 leiki og heilt tímabil með Keflavík 2019 við góðan orðstír.
Adolf er kraftmikill leikmaður sem lék með yngri landsliðum Tansaníu og á klárlega eftir að hjálpa okkur Völsungum afar mikið í baráttunni í sumar. Við bindum miklar vonir við kappann og hlökkum til að fá hann til okkar!