Fotbolti.net
31.01.26 - 22:53
Brynjar Ingi Erluson
LiveyÍtalski boltinn

Ítalía: Fiorentina áfram í fallsæti eftir tap gegn meisturunum

Albert og félagar eru í fallsæti

Albert og félagar eru í fallsæti

Canon

Mynd: EPA

Albert Guðmundsson og félagar hans í Fiorentina munu sitja áfram í fallsæti eftir þessa umferð í Seríu A á Ítalíu en liðið tapaði fyrir deildarmeisturum Napoli, 2-1, á Diego Armando Maradona-leikvanginum í Napolí í dag.
Íslenski landsliðsmaðurinn var eins og venjulega í byrjunarliði Fiorentina sem var alls ekki slakari aðilinn gegn lærisveinum Antonio Conte.

Albert átti meira að segja frábæran skalla sem Alex Meret varði meistaralega. Meret var að eiga góðan leik bæði á milli stanganna og í sóknarleiknum, en hann átti langt útspark á 11. mínútu fram völlinn á Antonio Vergara sem skoraði.

Miguel Gutierrez bætti við öðru á 49. mínútu áður en Manor Solomon minnkaði muninn.

Napoli varð fyrir blóðtöku í leiknum er Giovanni Di Lorenzo fór af velli en tímabilið er líklega búið hjá ítalska varnarmanninum og líkur Napoli á að taka titilinn orðnar minni fyrir vikið.

Sigur Napoli þýðir að liðið er með 46 stig í 3. sæti, sex stigum frá toppnum en Fiorentina í 18. sæti með 17 stig.

Cagliari vann 4-0 stórsigur á Hellas Verona og þá hafði Sassuolo betur gegn Pisa, 3-1, á útivelli.

Cagliari 4 - 0 Verona
1-0 Luca Mazzitelli ('36 )
2-0 Semih Kilicsoy ('45 )
3-0 Ibrahim Sulemana ('84 )
4-0 Riyad Idrissi ('90 )
Rautt spjald: Amin Sarr, Verona ('51)

Pisa 1 - 3 Sassuolo
0-1 Domenico Berardi ('25 )
0-2 Antonio Caracciolo ('45 , sjálfsmark)
1-2 Michel Aebischer ('51 )
1-3 Ismael Kone ('58 )

Napoli 2 - 1 Fiorentina
1-0 Antonio Vergara ('11 )
2-0 Miguel Gutierrez ('49 )
2-1 Manor Solomon ('57 )
Giovanni Di Lorenzo verður líklega frá út tímabilið

Giovanni Di Lorenzo verður líklega frá út tímabilið

Canon

Mynd: EPA

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter8+1322
2Lazio8+1122
3Roma8+1318
4Milan8+918
5Como8+717
6Frosinone8+414
7Juventus8+314
8Torino8+213
9Cagliari8-313
10Napoli8+311
11Atalanta8-110
12Lecce8-59
13Bologna8-28
14Sassuolo8-48
15Monza8-37
16Genoa8-77
17Udinese8-94
18Fiorentina8-104
19Parma8-104
20Venezia8-113
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.