Fotbolti.net
31.01.26 - 23:23
Brynjar Ingi Erluson

„Nýt þess í botn að spila með Ekitike"

Hugo Ekitike og Florian Wirtz hafa skapað góð tengsl á vellinum

Hugo Ekitike og Florian Wirtz hafa skapað góð tengsl á vellinum

Canon

Mynd: EPA

Florian Wirtz skoraði og lagði upp í 4-1 sigri Liverpool á Newcastle United á Anfield í kvöld, en Þjóðverjinn hefur verið sjóðandi heitur með þeim rauðu í síðustu leikjum.
England: Ekitike og Wirtz frábærir í sigri Liverpool - Tilfinningaþrungin stund fyrir Konate
TENGT EFNI

England: Ekitike og Wirtz frábærir í sigri Liverpool - Tilfinningaþrungin stund fyrir Konate

Wirtz skoraði stórfenglegt mark í síðari hálfleiknum og lagði upp eitt af tveimur mörkum Hugo Ekitike í fyrri hálfleiknum.

Hann hefur komið að níu mörkum í síðustu tíu leikjum með Liverpool sem er í fimmta sæti deildarinnar.

„Þetta var góð endurkoma. Þegar við lentum 1-0 undir komum við saman sem lið og börðumst til baka. Það er besta og eina rétta í stöðunni."

„Við fengum mörg góð færi og stundum vantaði aðeins upp á í úrslitasendingunni en það er alltaf gott að setja pressu á Newcastle og halda þeim á eigin vallarhelmingi. Sem lið erum við að gera mjög vel."

„Ég mun njóta þess að skora mörk svo lengi sem ég held áfram að hjálpa liðinu að vinna leiki. Ég er ánægður og það er best í heimi að fagna eigin marki. Ég er bara ánægður að spila hér fyrir framan stuðningsmennina,"
sagði Wirtz.

Hann og Ekitike hafa náð sérstaklega vel saman, en Wirtz segist njóta þess að spila með Frakkanum.

„Ég held að það geta allir séð gæðin í honum og hversu frábær leikmaður hann er. Hann er svo fljótur og er frábær að klára færin. Ég nýt þess í botn að spila með honum," sagði Wirtz.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.