Franski framherjinn Hugo Ekitike er að reynast bestu kaup Liverpool í síðasta glugga þó svo hann hafi ekki verið hugsaður sem aðalframherji liðsins, en hann er búinn að gera bæði mörkin gegn Newcastle United.
Anthony Gordon, sem fór í gegnum akademíu Liverpool, kom gestunum í Newcastle yfir á 36. mínútu en Ekitike hafði verið að hóta marki fyrr í leiknum.
Fimm mínútum eftir markið hjá Gordon skoraði Ekitike eftir sendingu frá Florian Wirtz í teignum og tveimur mínútum síðar bætti Frakkinn við öðru er hann fékk boltann frá Milos Kerkez vinstra megin, keyrði inn í teiginn og setti boltann í fjærhornið.
Þetta var fimmtánda mark Ekitike með Liverpool í öllum keppnum en staðan er 2-1 þegar búið er að flauta til loka fyrri hálfleiks.
Sjáðu fyrra markið hér
Sjáðu annað markið hér
Athugasemdir



