31.01.26 - 21:23
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Meistararnir halda áfram að misstíga sig

Harry Kane skoraði fyrra mark Bayern í svekkjandi jafntefli gegn nýliðunum

Mynd: EPA

Hamburger 2 - 2 Bayern
1-0 Fabio Vieira ('34 , víti)
1-1 Harry Kane ('42 )
1-2 Luis Diaz ('46 )
2-2 Luka Vuskovic ('53 )
1-0 Fabio Vieira ('34 , víti)
1-1 Harry Kane ('42 )
1-2 Luis Diaz ('46 )
2-2 Luka Vuskovic ('53 )
Þýskalandsmeistarar Bayern München töpuðu stigum annan deildarleikinn í röð er þeir gerðu 2-2 jafntefli við nýliða Hamburger SV í Hamborg í dag.
Bæjarar töpuðu fyrsta leik sínum á tímabilinu í síðustu umferð og héldu vandræðin áfram gegn Hamburger.
Eftir rúman hálftíma fengu heimamenn vítaspyrnu þegar Joshua Kimmich, sem hafði stuttu áður átt hörkuskot í þverslá, braut á sóknarmanni í teignum og vítaspyrna dæmd.
Portúgalinn Fabio Vieira fór á punktinn og skoraði með ofboðslega öruggu skoti neðst í vinstra hornið. Manuel Neuer skutlaði sér í rétt horn, en skot Vieira var fast og hnitmiðað.
Adam var ekki lengi í paradís því aðeins átta mínútum síðar jafnaði Harry Kane eftir fyrirgjöf Kimmich. Þetta var 22. deildarmark Kane á tímabilinu.
Vincent Kompany, þjálfari Bæjara, setti Luis Díaz inn á í hálfleik og þakkaði hann strax fyrir sig með því að koma gestunum yfir eftir stungusendingu Michael Olise.
Það getur oft komið uppgjöf í lið þegar þau lenda undir gegn Bayern, en það var ekki á dagskránni hjá Hamburger. Luka Vuskovic, sem er á láni frá Tottenham, skallaði boltanum í netið og jafnaði leikinn.
Undir lok leiks fengu heimamenn dauðafæri til þess að tryggja sér fyrsta sigurinn gegn Bayern síðan 2009. Neuer fór í skógarhlaup, boltanum vippað yfir hann og á vinstri vænginn en Alphonso Davies var fljótur á marklínuna og kom sínum mönnum til bjargar.
Jafntefli var niðurstaðan og fær Borussia Dortmund tækifæri til þess að saxa forystu Bæjara niður í sex stig ef liðinu tekst að vinna botnlið Heidenheim á morgun.

Bundesliga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Bayern | 7 | +19 | 17 |
| 2 | Dortmund | 7 | +8 | 17 |
| 3 | Freiburg | 7 | +7 | 13 |
| 4 | Leverkusen | 7 | +4 | 13 |
| 5 | RB Leipzig | 7 | +9 | 12 |
| 6 | Werder | 7 | +1 | 12 |
| 7 | Mainz | 7 | +3 | 10 |
| 8 | Elversberg | 7 | -3 | 10 |
| 9 | Augsburg | 7 | +4 | 9 |
| 10 | Hoffenheim | 7 | 0 | 9 |
| 11 | Hamburger | 7 | -10 | 9 |
| 12 | Köln | 7 | -3 | 8 |
| 13 | Paderborn | 7 | -3 | 8 |
| 14 | Frankfurt | 7 | -7 | 8 |
| 15 | Stuttgart | 7 | -3 | 6 |
| 16 | Schalke 04 | 7 | -3 | 6 |
| 17 | Union Berlin | 7 | -12 | 6 |
| 18 | Gladbach | 7 | -11 | 3 |