PSG er búið að festa kaup á Mauro Icardi, framherjanum sem var á láni hjá félaginu frá Inter á liðinni leiktíð.
PSG greiðir 45 milljónir punda fyrir framherjann sem skrifar undir fjöggura ára samning. Einhverjar sögusagnir eru um það að í kaupsamningnum sé klásúla sem segir að ef Juventus kaupi Icardi af PSG þurfi franska félagið að greiða Inter tæplega 15 milljónir punda.

Icardi er 27 ára gamall framherji sem gekk í raðir Inter frá Sampdoria sumarið 2013.
Hjá Inter skoraði hann 111 mörk í 188 deildarleikjum og í vetur skoraði hann tólf mörk í 20 deildarleikjum með PSG.
Athugasemdir