Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 31. júlí 2020 10:00
Elvar Geir Magnússon
Zlatan sagður ætla að vera áfram í Mílanó
Zlatan er ekki dauður úr öllum æðum.
Zlatan er ekki dauður úr öllum æðum.
Mynd: Getty Images
La Gazzetta dello Sport segir að Zlatan Ibrahimovic hafi ákveðið að vera áfram hjá AC Milan og muni á næstu dögum ræða um nýjan samning.

Sænski sóknarmaðurinn hefur verið að hugsa sín mál en hann hefur haft mikil áhrif á lið Milan síðan hann kom í janúar. Hann hjálpaði liðinu að enda í sjötta sæti ítölsku A-deildarinnar.

Zlatan er 38 ára og ítalskir fjölmiðlar segja að samningur hans gæti verið með klásúlur um ýmsar bónusgreiðslur tengdar skoruðum mörkum, spiluðum leikjum og árangri liðsins.

Zlatan hefur skorað níu mörk og átt fimm stoðsendingar í sautján leikjum í ítölsku A-deildinni síðan hann kom aftur til félagsins í janúar.
Athugasemdir
banner
banner