lau 31. júlí 2021 07:00
Victor Pálsson
Bailey staðfestir að hann vilji fara
Mynd: EPA
Leon Bailey, leikmaður Leverkusen, vill komast burt frá félaginu í sumar en ensk félög hafa áhuga.

Bailey hefur skorað 39 mörk í 156 leikjum fyrir Leverkusen og vill vængmaðurinn komast annað og það strax.

Aston Villa er orðað við þennan landsliðsmann Jamaíka sem er aðeins 23 ára gamall.

„Hundrað prósent. Ég er tilbúinn í næsta skref," sagði Bailey í samtali við ESPN.

„Ég hef unnið hart að því að komast þar sem ég er í dag. Mér finnst ég vera á réttum stað til að taka næsta skref. Vonandi getur það gerst bráðlega."

„Ég vil spila í hæsta gæðaflokki. Mér finnst ég þurfa á nýrri áskorun að halda svo það yrði einhvers staðar þar sem ég get lagt mig fram og sýnt mín gæði."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner