Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 31. júlí 2021 09:30
Victor Pálsson
Martinelli: Arteta einn besti stjóri heims
Mynd: EPA
Mikel Arteta er einn besti stjóri heims að sögn Gabriel Martinelli en þeir vinna saman hjá Arsenal.

Mikel Arteta er einn besti stjóri heims að sögn Gabriel Martinelli en þeir vinna saman hjá Arsenal.

Arteta hefur náð ágætis árangri með Arsenal en sumir vildu þó mun meira á síðustu leiktíð.

Martinelli var sjálfur mikið meiddur á síðasta tímabili en er spenntur fyrir því nýja sem hefst eftir tvær vikur.

„Ég missti af um fimm mánuðum vegna meiðsla en að lokum gerðum við vel. Við vorum eitt besta liðið eftir jól," sagði Martinelli.

„Við áttum góða leiki undir lok tímabils svo leikmennirnir eru fullir sjálfstrausts. Við þurfum að reyna að fara sama veg."

„Arteta er reynslumikill og ég held að hann sé einn besti stjóri heims."
Athugasemdir
banner
banner